Blogga :)Ómar & Dagný
kanski maður haldi áfram að blogga :) ætlum að hugsa málið :DÓmar & Dagný
Minn diggi áðdáandi hún Salóme bað mig um að blogga svo ég ætla að blogga fyrir hana :DÓmar & Dagný
Jæjja núna er ég komin ,,heim" eða allavega til Íslands og er það mjög gott!Það fer að koma að þvíÓmar & Dagný
Já það fer að koma að því að við hittum Ómar loksins.. Við Óskar Ingimar leggjum í ferðalag næsta miðvikudag og það langt ferðalag, og Óskar Ingimar stækkar og stækkar og þarf ég aldeilis að spá aðeins í hverju skal pakka niður..Mótmælin :pÓmar & Dagný
ég hef nú svosem ekki mikið að seigja..HVAÐ Á ÞETTA AÐ ÞÝÐA??Ómar & Dagný
Mótmæli Vörubílstjóra, þetta er skelfilegt fyrst: Skil ég alveg þeirra sjónarmið því þetta er jú sjónarmið okkar allra borgara í landinu, sem eiga eitthvað sem gengur fyrir eldsneyti sem er samkvæmt F.Í.B 3-4 bílar á hvert heimili. Það má ekki gleima því að þeir eru að berjast fyrir málstað sem varða alla landsmenn, enn ekki einsog í fyrra sumar þegar menn voru að mótmæla virkjunum þegar menn voru að keðja sig við vinnuvélar og klifra upp í krana og þess háttar sem stofna þeirra eigin lífi í hættu. Að lögreglan komi með hjálma,skildi og mase er ALLTOF langt gengið. Vægast sagt þetta er bara til þess að skvetta bensín á eld og þar að auki rándýru bensíni hver stendur fyrir þessu??? Það er ekki einhver nýútskrifaður lögregluþjónn sem langar að verða hetja með því að masea og berja menn með kylfum því hann var misnotaður í æsku eða laminn í fríminotum, þetta kemur frá einhverjum að toppum lögreglunar og þetta er ekki til þess að róa lýðinn eða brjóta upp mótmæli þetta er aðeins til þess að meiri harka færist í leikinn og þetta á bara eftir að enda ílla. Lögreglan segir að það hafi ekkert annað verið í stöðuni það er ekki rétt það voru jú þeir sem mæta með skilldi og hjálma til að ögra mótmælendum sem er ekki það sem lögreglan á að gera lögregln er með mase og kylfur fyrir tilfelli til sjálfsvarnar og til að leysa upp óeirðir ekki til þess að nota með þessum hætti. Og sjálfsögðu svara mótmælendur fyrir sig hver myndi ekki gera það? Ef lögregluþjónn gengi upp að þér og segði sestu á götuna myndirðu gera það??? Neibb afhverju ættirðu að setjast á götuna því lögregluþjónnin segði það?? Þetta lítur út fyrir að vera ein af fantasíum Björns Bjarnassonar um hermensku. Hvað ætli lögreglumaðurinn sem stóð sína vakt og maseaði allt liðið í gær hugsi í dag þegar hann fer á fjölskildu bílnum á orkuna að taka bensín og verðið hefur hækkað um 2 kr síðan í gær og það kosti 3000 kr meira að fylla bílinn í dag heldur enn fyrir 1 ári hugsar hann jæja ég er nú með svo góð laun NEI held ekki hann hugsar hvaða rugl er þetta. það er jú heimsmarkaðsverð sem er að hækka og ekkert sem er hægt að gera í því en þegar Íslenskaríkið getur lækkað verðið um rúm 40% og ríkisjóður sínir svakalegan hagnað ár eftir ár en getur ekki lækkað elsneytisverð um kanski 25% og myndi samt sína gríðarlegan hagnað þetta er ekki rétt og ég segi bara einsog Ágústa Eva í svalbarða: "HVAÐ Á ÞETTA AÐ ÞÝÐA?" enn eitt enn vörubílstjórar og almenningur verður að passa sig að skjóta þennan málstað ekki í fótinn með eh hetju stælum með því að ætla að kýla lögreglumenn eða kasta grjót og þess háttar láta þetta ekki fara útí einhvað rugl ef löggan ræðst á þig og þú slæst við hana á mót þá er ekki hægt að líta út einsog fórnarlamb en ef þú gerir mjög lítið á móti þá lítur þetta betur út fyrir þig.Ómar
SÆÆÆÆLARÓmar & Dagný
Já það er nú aldeilis hvað Dagga er búin að vera löt að blogga :) Þannig að ég verð bara að skrá nokkrar línur: Ég er hérna á Eskifirði hinum meginn á landinu að vinna með bræðrum mínum hjá Skeljungi og þegar ég er ekki að vinna finn ég mér eithvað til dundurs ég fer 2. hvern dag í gymmið og svo fórum við Bjarni á svartfugl á jetskí jább geri aðrir betur og náðum 16 kvekendum og svo eldaði Bergmann þá svo er ég að taka mótorhjálaprófið og allt að gerast en sakna samt Snúllu og Snúlla.jr en við sjáumst brátt þegar við leggjum land undir fát og þeysumst til Reykjavíkur í afmæli til Jónu systu svo tek ég Óskar austur þegar Dagga fer til lux í húsmæðraorlof:) svo ætlum við fjölskyldan að fara í sumarbústað í Úthlíð í júní það verður kósý:) until next ,take it away Dagný:)
Ómar
Ómar ennþá of upptekin til að blogga :)Ómar & Dagný
já klukkan er margt ég veit er að fara sofa.. :)LuxÓmar & Dagný
Hann Ómar var nú búin að seigjast ætla að blogga næst :) Eeen ég nenni nú ekki að bíða eftir því :)Það er voðalega lítið að frétta af okkur Óskari Ingimar.. Við höfum það bara rosalega fínt í víkinni, og höfum alveg nóg að gera, eða allavega ég.. Alltaf nóg að gera í snyrtingunni sem er mjög fínt.
Og í maí þá ætla ég að skreppa til Luxemborg að hitta Salóme og Örnu Maríu og er ég mjög spent. Óskar Ingimar ætlar að fara austur og vera hjá pabba sínum og í pössun hjá Ömmu sinni á meðan hann er að vinna :) En þetta verður nú samt bara ein helgi :)
Ég bókaði farið áðan og ég veit að Salóme valhoppaði af gleði! ;)
Helgina áður en ég fer út er Jóna systir Ómars að halda upp á 40 ára afmælið sitt í borginni og ætlum við að láta sjá okkur þar af sjálfsögðu og eftir það fara Ómar og Óskar Ingimar austur aftur og ég fer út..
En ég er strax orðin stressuð á að fara frá Óskari... Og það á ekki eftir að vera auðvelt að skilja við hann þó það sé bara þessi helgi..
En ætla að leifa Ómari að blogga næst :)
Dagný
